Um Notalegt

Hafðu það notalegt

Notalegt er lítil íslensk netverslun með eina einfalda hugmynd: að gera löngu, dökku og köldu mánuðina aðeins auðveldari og miklu notalegri.

Við veljum hverja vöru með íslenskan vetur í huga – dökka morgna, kalda fætur, löng kvöld og jólagjafir handa fólkinu sem þú elskar.

Af hverju Notalegt?

  • Sent frá Íslandi – engin bið í margar vikur eftir pakka að utan.
  • Verðið sem þú sérð er verðið sem þú borgar – enginn tollur eða aukagjöld við afhendingu.
  • Auðvelt að sækja – sæktu pöntunina á Dropp-stað nálægt þér eða fáðu hana senda heim.
  • Raunveruleg aðstoð – spurningar? Sendu okkur póst á omarvikinga@gmail.com og við svörum fljótt.